söknuður - vilhjálmur vilhjálmsson lyrics
mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga, því er ver
ef værir þú hjá mér, vildi’ ég glaður
verða betri en ég er
eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt
ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt
við gætum sungið, gengið um
gleymt okkur hjá blómunum
er rökkvar, ráðið stjörnumál
gengið saman hönd í hönd
hæglát farið niðr’á strönd
fundið stað, sameinað, beggja sál
horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd
í æsku léttur ís og myrku jólin
nú einn ég sit um vetrarkvöld
því eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt
ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður alltof fljótt
ég gái út um gluggann minn
hvort gangir þú um hliðið inn
mér alltaf sýnist ég sjái þig;
ég rýni út um rifurnar
ég reyndar sé þig allstaðar
þá napurt er, það næðir hér, og nístir mig
Random Song Lyrics :
- deranged - chris violet lyrics
- f1 pensando en ti - eddyjae lyrics
- snakes - ice csay lyrics
- supersonic (nederlandse vertaling) - fromis_9 lyrics
- for better or worse - unknown reason lyrics
- i die help me - krobathurt lyrics
- show - butdan lyrics
- the truth - recessive traits lyrics
- #savebob - krasav4ik_229 lyrics
- ошибкой(mistake) - kashigami dante lyrics