parís norðursins - prins póló lyrics
prins póló – parís norðursins (hægri smella og ‘save-as’)
fögur fyrirheit á blússandi siglingu
á ullarnærfötum í grenjandi rigningu
stími heim í heiðardalinn
góður strákur og vel upp alinn
mikið verður gott að knúsa kerlu
erlu, erlu, erlu, erlu góðu erlu
sem giftist mér því ég kunni að skaffa
sjómaður og sonur hans haffa
hlakka svo til að hitta börnin
maríu hænu, hafþór og örninn
vinna upp tíma, klippa smá og líma
í eltingaleik fram að háttatíma
hafið – ég þekki ekki annað
afi – var harðmenni annálað
mamma – sultuslök nunna
systir mín – gunna þunna
brósi – var örugglega vangefinn
frændi – rændi mig æskunni
hafið – ég þekki ekki annað
afi – var harðmenni annálað
mamma – sultuslök nunna
systir mín – gunna þunna
brósi – var örugglega vangefinn
frændi – rændi mig æskunni
en þegar heim er komið bíður mín flaskan
og á tröppunum stendur ferðataskan
erla góða, fór með vini á hestbak
síðsti túr hann keyrði um þverbak
en þegar botni er náð er bara að standa upp aftur
þetta veit hver heilvita raftur
batnandi mönnum er best að lifa
hinir geta bara étið hundaskít og slefað
hafið – ég þekki ekki annað
afi – var harðmenni annálað
mamma – sultuslök nunna
systir mín – gunna þunna
brósi – var örugglega vangefinn
frændi – rændi mig æskunni
hafið – ég þekki ekki annað
afi – var harðmenni annálað
mamma – sultuslök nunna
systir mín – gunna þunna
brósi – var örugglega vangefinn
frændi – rændi mig æskunni
Random Song Lyrics :
- fading into grey - billy lockett lyrics
- love somebody - robyn sherwell lyrics
- if i was dead - brooke bentham lyrics
- eggshells - rachel sermanni lyrics
- every time you're high - billy lockett lyrics
- do nur rush - 小青龍 feat. 劉柏辛 lyrics
- corazón de poeta - jeanette lyrics
- i call bullshit - highasakite lyrics
- whatever that means - highasakite lyrics
- i'll make cereal - cavetown lyrics