lyftutónlist - moses hightower lyrics
Loading...
lyftuklefinn, lengst í himininn
loftandi þöglu pari
hurðin víkur, hrúgast inn
hóstandi, hálsbólginn skari
starað niðrí gólf. orðum kyngt
spegillinn sniðgenginn
augnablikið er farið
og svo kom inn einn sem blístraði lag
dröslandi inn stóreflis tösku
glotti og bauð öllum góðan dag
gjallandi málrómi og rösk*m
og á hverri hæð týndist út
uns okkar maður einn, af stút
fékk sér úr örsmárri flösku
ó, að standa þögul hlið við hlið
og standa kyrr, en færast til:
niður og upp
aldrei framávið
pompar létt af stað, heyrist brak
í þyngdarleysi andartak
í vél sem að fall þitt er falið
augnablikið er farið
Random Song Lyrics :
- i am dying - 701bonez lyrics
- tell me now - the blackwater fever lyrics
- you're pretty on the inside - ceann lyrics
- eternal sleep - poetic mind lyrics
- movement - yenjamin lyrics
- ms. nipple queen - serengeti lyrics
- i won't go - elix risqué lyrics
- eisblumen blüh'n - andrea berg lyrics
- beautiful (volac remix) - what so not lyrics
- the road - mango groove lyrics