október 2015 (calliope frh.) - kef lavík lyrics
hratt með þér
hratt með þér
[kef lavík & hafdís ýr:]
grafðu mig í fjallagörðunum
hvar röddin hennar bergmálar
því ég held enn utan um eyrun
reyna að muna hvernig traust hljómar
grafðu mig helst undir himninum
hvar stjörnur blika skærastar
þá mun ég á kvöldin draga línur
niður á milli og teikna brjóst hennar
grafðu mig þar sem við kynntumst fyrst
hvar drukk*m við burt dapurt haust
þar sem ég hef henni lofað auðmjúkt
líkamann minn allan endalaust
settu hennar nafn á kistuna
hvar hendur merkja hjartastað
brotinn ég sem þræll krjúpandi á grjóti
get þá enn kysst hennar handarbak
í höllum huga míns hvar endurlifi
ég hvert hnédjúpt andartak
ég sem flækist um án friðar
fékk hjá henni hlýjan samastað
einn dag við hafströndina um haustið
hvar ég rauðvínsfullur fann hana
[kef lavík:]
nætur líða alltaf jafn hægt í þessum kafbát
verða lítil skref í snjónum
sem að liggja niður að höfn
soldáns elskaðasta ambátt
eða hvað sem ég get kallað þig
mér er kalt og ég er einn öll þessi kvöld
nætur líða alltaf jafn hægt í þessum kafbát
og ég virðist ætla að drukkna
í hugmyndum af þér
því í gegnum þínar kviksjár
virðast stjörnukerfin álitleg
til að ferðast um með félaga held ég
nætur líða alltaf jafn hægt í þessum kafbát
verða stjörnuljós að klárast
rauðu endarnir á þeim
ég sem er að ferðast ljósár
þá með aðeins eigin hugarheim
myndi bakka ef það væri ekki of seint
nætur líða alltaf jafn hægt í þessum kafbát
svo ég fór að hl*sta á lögin sem ég tileinkaði þér
og þótt það hljómi eins og seinast(?)
eru þau hyllingar í eyðimörk
segi eflaust svo mér líði ekki verr
Random Song Lyrics :
- seu jeito - lucas canavez lyrics
- i want my money* - mario judah lyrics
- ghost ii - talented broke boys lyrics
- lalka kula lol - bella ćwir lyrics
- nocturno agostense - la tétrada lyrics
- tha undadawg - exorci$t lyrics
- christiania bumsens vise - grev lyhne & peter ingemann lyrics
- gimme - indigo lyrics
- heart melt/heart change - eli holland lyrics
- can't relate - $ofaygo & pasto flocco lyrics