stórir strákar fá raflost - egó (isl) lyrics
þeir hringdu í morgun
sögðu að lilla væri orðin óð
að hún biti fólk í hálsinn
drykki úr þeim allt blóð
hún hafði sagt, hún gæti ekki dottið
hún hefði engan stað til að detta á
hún sagðist breytast í leðurblöku
að hún flygi um loftin blá
læknirinn var miðaldra
augun í honum voru grá
hann djönkaði sig með morfíni
sagðist hafa unnið hér í 15 ár
þá órólegu geymdu á deild
sem var sérhönnuð fyrir þá
það átti að setja lillu í raflost
hann bauð mér að horfa á
stórir strákar fá raflost
stórir strákar fá raflost
stórir strákar fá raflost
gangastúlkurnar hvæstu og sýndu sér tennurnar
þær skipuðu mér að fara í rúmið
sögðu: “tími kominn á pillurnar”
ég sagði þeim að ég væri gestur
að ég væri á leiðinni heim
þær skelltu mér með látum í gólfið
sögðu svo: “þú ert einn af þeim!”
á kvöldin kemur læknirinn
og segist vera vinur minn
segir: “þú verður að vera rólegur
þú æsir upp öll hin”
segir að ég sé tveggja ára meðferð
hann býður mig velkominn
segir á morgun fái ég raflost
svo ég verði eins og öll hin
stórir strákar
fá ra*a*aflost
stórir strákar
fá ra*a*aflost
stórir strákar
fá ra*a*aflost
stórir strákar
fá ra * a * aflost
Random Song Lyrics :
- she from up the drombán hill - dystopian future movies lyrics
- liberation dance - short fuse lyrics
- date my friend, eric - the marmalade lyrics
- mirrors - ignore the lights lyrics
- bistro - j masta badman lyrics
- 12 am freestlye - byron messia lyrics
- mr. lee - steven fendi lyrics
- rainy days - sean kingston lyrics
- liquid lunch - big lettuce lyrics
- when the world stops turning - brent cash lyrics